- Nemendaþjónusta ME
Nú er tíminn... skráning á Fokk kvíði í fullum gangi!
Við endurtökum fræðslunámskeið síðasta árs - Fokk kvíði! Það verður næstu 6 vikurnar í 6. blokk í stofu 12 (Hornbrynju). Fyrsti tíminn er núna á morgun, fimmtudaginn 16. janúar. Skráning hjá Nönnu (nanna@me.is) eða Hildi (hildur@me.is).
Ef kvíði er farinn að hafa truflandi áhrif á þig í daglegu lífi þá gæti þetta námskeið verið fyrir þig. Meðal þess sem fjallað verður um eru kvíðaeinkenni, birtingarmyndir, orsakir, tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar sem og möguleg bjargráð.

frá Nemendaþjónustu ME
20 views0 comments